Bluetooth Headset BH 608 - Meðferð tækisins

background image

Meðferð tækisins

Í tækinu fer saman frábær hönnun og

flókin tækni sem fara þarf gætilega

með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa

til við að halda tækinu í ábyrgð.
• Halda skal tækinu þurru. Úrkoma,

raki og hvers kyns vökvar geta

innihaldið steinefni sem tæra

rafrásirnar.
Ef tækið blotnar skal leyfa tækinu að

þorna alveg.

• Ekki skal nota tækið á rykugum og

óhreinum stöðum né geyma það

ÍSLENSKA

background image

þar. Hreyfanlegir hlutir og rafrænir

hlutar þess geta skemmst.

• Ekki skal geyma tækið á köldum eða

heitum stað. Hátt hitastig getur

dregið úr endingu rafeindatækja,

skemmt rafhlöður og undið eða

brætt sum plastefni. Þegar tækið

hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur

raki myndast innan í því og hann

getur skemmt rafrásaspjöld.

• Ekki skal reyna að opna tækið.
• Tækinu skal ekki henda, ekki skal

banka í það eða hrista það. Óvarleg

meðferð getur skemmt innri

rafrásaspjöld og fíngerðan búnað.

• Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til

hreingerninga eða sterk hreinsiefni

til þess að þrífa tækið. Aðeins skal

nota mjúkan, hreinan og þurran klút

til að hreinsa yfirborð tækisins.

• Ekki skal mála tækið. Málningin

getur fest hreyfanlega hluti tækisins

og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.

• Þessar ábendingar eiga jafnt við um

tækið sem og aðra aukahluti.