Bluetooth Headset BH 608 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

Þetta tæki er með innbyggða, fasta,

endurhlaðanlega rafhlöðu. Ekki reyna

að fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu þar

sem það getur skemmt tækið.
Tækið er ætlað til notkunar þegar það

er hlaðið með eftirfarandi

hleðslutækjum: AC-3, AC-4, AC-5, AC-8,

DC-4 og DC-9. Númer hleðslutækisins

getur verið mismunandi eftir klónni

sem er notuð. Gerð klóarinnar er

auðkennd með einu af eftirfarandi: E,

EB, X, AR, U, A, C, K, B eða UB.

Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu

nokkur hundruð sinnum en að því

kemur að hún gengur úr sér.
Aðeins skal endurhlaða rafhlöðuna með

hleðslutækjum sem Nokia hefur

samþykkt til notkunar með þessu tæki.
Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta

skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið

notuð í langan tíma, kann að vera

nauðsynlegt að tengja hleðslutækið,

aftengja það síðan og tengja það aftur

til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er

ÍSLENSKA

background image

alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur

þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við

rafmagnsinnstungu og tækið þegar það

er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna

rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki

þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma

hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar

hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki

í notkun.
Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð

í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F

að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga

úr endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki

með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að

hætta að starfa tímabundið. Einkum

hefur mikið frost takmarkandi áhrif á

rafhlöður.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem

þær geta sprungið. Farga skal

rafhlöðum í samræmi við staðbundin

lög og reglugerðir. Skila skal þeim í

endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki

skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.
Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki.
Endingartímar eru aðeins til

viðmiðunar. Raunveruleg afköst eru

háð mörgum þáttum eins og völdum

stillingum tækisins, eiginleikum

tækisins sem eru í notkun (eða eru

keyrðir í bakgrunni), ástandi

rafhlöðunnar og umhverfishitastigi.