Símtöl
Hringt er úr tækinu á venjulegan hátt
þegar höfuðtólið er tengt við það.
Til að hringja aftur í númerið sem
síðast var hringt í (ef farsíminn
styður þennan möguleika með
höfuðtóli) er ýtt tvisvar á
svartakkann þegar ekkert símtal er í
gangi.
Til að gera raddhringingu virka (ef
síminn styður þennan möguleika
með höfuðtólinu) er svartakkanum
haldið inni í u.þ.b. 2 sekúndur þegar
ekkert símtal er í gangi. Farðu eftir
leiðbeiningunum í notendahandbók
farsímans.
ÍSLENSKA
Ýtt er á svartakkann til að svara
símtali eða leggja á. Símtali er
hafnað með því að ýta tvisvar
sinnum á þennan takka.
Renndu „hljóð af“ takkanum að
hljóðnemanum til að slökkva á
hljóðnemanum meðan á símtali
stendur. Renndu takkanum í hina
áttina til að kveikja aftur á
hljóðnemanum.
Til að flytja símtal úr höfuðtólinu yfir
í samhæft tengt tæki er
svartakkanum haldið niðri í u.þ.b. 2
sekúndur.