Höfuðtólið parað og tengt
Para þarf og tengja höfuðtólið við
samhæft tæki áður en hægt er að
nota það.
ÍSLENSKA
Hægt er að para höfuðtólið við allt að
átta tæki en aðeins er hægt að tengja
það við tvö tæki í einu.
1. Gakktu úr skugga um að kveikt sé
á tækinu og að slökkt sé á
höfuðtólinu.
2. Kveiktu á höfuðtólinu til að para
það við tæki ef það hefur ekki
verið parað áður. Höfuðtólið fer í
pörunarhaminn og bláa
stöðuljósið fer að blikkar hratt.
Ef höfuðtólið hefur áður verið
parað við tæki skaltu gæta þess
að slökkt sé á höfuðtólinu, og
halda síðan rofanum inni í u.þ.b.
5 sekúndur þar til bláa stöðuljósið
fer að blikka hratt.
3. Kveiktu á Bluetooth í símanum
eftir u.þ.b. 3 mínútur og láttu leita
að Bluetooth-tækjum. Nánari
upplýsingar er að finna í
notendahandbók tækisins.
4. Veldu höfuðtólið af listanum yfir
þau tæki sem fundust.
5. Ef þörf krefur sláðu þá inn
aðgangskóðann 0000 til að para
og tengja höfuðtólið við tækið.
Í sumum tækjum gæti þurft að
koma tengingunni á að pörun
lokinni.
Þegar höfuðtólið er tengt við minnst
eitt tækið og er tilbúið til notkunar
blikkar bláa stöðuljósið hægt.
Til að tengja höfuðtólið handvirkt
við tækið sem var notað síðast
heldurðu svartakkanum inni í um 2
sekúndur (þegar ekkert tæki er
tengt) eða kemur á tengingu í
Bluetooth-valmynd tækisins.
Hugsanlega er hægt að stilla tækið
þannig að höfuðtólið tengist því
sjálfkrafa. Í Nokia tækjum er þessi
möguleiki virkjaður með því að
breyta stillingum fyrir pöruð tæki í
Bluetooth-valmyndinni.
ÍSLENSKA