Kveikt og slökkt
Kveikt er á höfuðtólinu með því að
halda rofanum inni í u.þ.b. 2
sekúndur. Höfuðtólið gefur frá sér
tón og græna stöðuljósið blikkar
hægt á meðan höfuðtólið reynir að
tengjast við annað eða bæði tækin
sem það var síðast tengt við. Þegar
höfuðtólið er tengt við minnst eitt
tækið og er tilbúið til notkunar
blikkar bláa stöðuljósið hægt. Hafi
höfuðtólið ekki verið parað við neitt
tæki fer það sjálfkrafa í pörunarham.
Slökkt er á höfuðtólinu með því að
halda rofanum inni í u.þ.b. 2
sekúndur. Höfuðtólið gefur þá frá sér
tón og rauða stöðuljósið logar í
stutta stund. Ef höfuðtólið er ekki
tengt við tæki innan u.þ.b. 30
mínútna slekkur það sjálfkrafa á sér.